Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar Íslands
Árlegar vetrarfuglatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands hófust 1952 og má finna upplýsingar um þær á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar; http://www.ni.is/dyralif/fuglar/vetrarfuglar/
Niðurstöður talninganna verða birtar þegar þær hafa allar borist á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar. Hér verður tekið smá forskot á sæluna og sagt frá þremur talningum. Skarphéðinn G. Þórisson og Vigfús Hjörtur Jónsson töldu á Egilsstöðum og Fellabæ. Vegna hláku höfðu fuglar líklega dreifst svo óvenju fáir snjó- og auðnutittlingar sáust en af spörfuglum sáust til viðbótar tveir músarindlar, tveir hrafnar og níu silkitoppur og fylgja hér með myndir af þeim. Stokkendur hafa hér vetrarsetu og sáust 36 fuglar. Flestar voru á Eyvindaránni en með þeim var einn rauðhöfðabliki.
Halldór W. Stefánsson taldi við Hrafnabjörg og sá fimm dæmigerðar staðfuglategundir fyrir þetta svæði; einn fálka, 199 rjúpur, 389 snjótittlingar, sex auðnutittlinga og sex hrafna. Þetta var svipað og áður hefur verið talið.
Eins og fram kemur hér að ofan sjást yfirleitt fáar tegundir inn til landsins í vetrarfuglatalningum samanborið við strandsvæði. Páll Leifsson er einn öflugasti vetrarfuglatalningarmaður landsins og telur mörg svæði frá Fáskrúðsfirði á Norðfjörð. Af sjaldgæfari fuglum sem Páll sá var sefgoði og gráhegri á Norðfirði, tveir flórgoðar á Eskifirði og þar líka átta silkitoppur og einn stari. Á þessum svæðum sjást líklega flestar bjargdúfur af öllum talningarsvæðum landsins en þeim hefur fjölgað mikið á Eski- og Reyðarfirði.
Auk fugla eru spendýr líka talinn og því munu hreindýrin 150 sem voru í Hólmanesinu fylgja með í talningarskýrslu Páls.
Í töflu hér að neðan eru tíunduð talningarsvæði og –menn í talningu fyrir ári á Austurlandi. Vonandi munu fleiri gefa kost á sér í þessa árvissu talningu í framtíðinni svo fjölga megi talningarsvæðum.
Upplýsingar um talninguna nú og í gegnum árin má finna á eftirfarandi slóð: http://www.ni.is/dyralif/fuglar/vetrarfuglar/talning
Talningarsvæði og –menn á Austurlandi í vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofnunar Íslands um áramót 2011-12
Húsey í Hróarstungu |
Örn Þorleifsson, Örn Arnarson og Arney Ólöf Arnardóttir |
Hrafnabjörg í Jökulsárhlíð |
Halldór W. Stefánsson |
Egilsstaðir og Fellabær |
Skarphéðinn G. Þórisson og Þórhallur Borgarsson |
Seyðisfjörður: Vestdalseyri - Ölfueyri |
Þorsteinn Rúnar Eiríkss, Borgþór Jóhannss og Gunnar Ragnarss |
Norðfjörður: Páskahellir - Frystihús |
Páll Leifsson |
Norðfjörður: Frystihús - Hellisfjarðarnes |
Páll Leifsson |
Fáskrúðsfjörður norðanverður |
Yann Kolbeinsson, Gaukur Hjartarson og Jónína G. Óskarsdóttir |
Fáskrúðsfjörður sunnanverður |
Yann Kolbeinsson og Gaukur Hjartarson |
Stöðvarfjörður norðanverður |
Yann Kolbeinsson og Gaukur Hjartarson |
Stöðvarfjörður sunnanverður |
Yann Kolbeinsson og Gaukur Hjartarson |
Breiðdalsvík (breytt) |
EKKI TALIÐ |
Breiðdalur: ós Breiðdalsár - Streitishvarf |
EKKI TALIÐ |
Breiðdalur: Innri-Kleif |
EKKI TALIÐ |
Berufjörður: Berufjarðará - Búlandsá |
Albert Jensson |
Berufjörður: Eyfreyjunestangi - Sandbrekkuvík |
Eyjólfur Guðjónsson |
Berufjörður: Sandbr.vík - Háuklettar v. Innri-Gleðivík |
Eyjólfur Guðjónsson |
Hamarsfjörður að norðan, Hamarsá - Búlandshöfn |
Andrés Skúlason, Kristján Ingimarsson og Ingimar Sveinsson |
Reyðarfjörður: Rifsker - Kaganes |
Páll Leifsson |
Reyðarfjörður: Kaganes - Innstekkur |
Páll Leifsson |
Eskifjörður: Innstekkur - Hólmanes |
Páll Leifsson |
Reyðarfjörður: Hólmanes - Bjargatangi |
Páll Leifsson |
Reyðarfjörður: Bjargatangi - Holtastaðaeyri |
Páll Leifsson |
Reyðarfjörður: Holtastaðaeyri - Hlaðhamar |
Páll Leifsson |
Reyðarfjörður: Hlaðhamar - Kolmúli |
Páll Leifsson |
Reyðarfjörður: Kolmúli - Vattarnes |
Páll Leifsson |