Viðburðir á Degi íslenskrar náttúru
Dagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur í þriðja sinn mánudaginn 16. september. Deginum er ætlað að vekja athygli á mikilvægi íslenskrar náttúru. Í tilefni dagsins verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allt land. Á Austurlandi verður:
Fjölskylduganga í Hólmanes
Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að Hólmanes var friðlýst sem fólkvangur og friðland býður Náttúrustofa Austurlands og Fjarðabyggð upp á fjölskyldugöngu um svæðið. Mæting kl. 16:30 við bílastæðið á Hólmahálsi milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Áætlað er að gangan taki um 2,5 klst. Um leiðsögn sér Skarphéðinn G. Þórisson sérfræðingur Náttúrustofunnar.
Náttúrugripasafnið
Náttúrugripasafnið í Neskaupstað verður opið frá kl. 13:00 – 17:00. Safnið er til húsa að Egilsbraut 2, ásamt Sjóminja- og smiðjumunasafni Jósafats Hinrikssonar og Myndlistarsafni Tryggva Ólafssonar.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis á báða viðburði.