Heimsókn í Skálanes
Fimmtudaginn 27. júní síðastliðinn fór starfsfólk Náttúrustofu Austurlands í fræðslu og skemmtiferð til Seyðisfjarðar þar sem Ólafur Örn Pétursson hafði boðið til heimsóknar og kvöldverðar að Skálanesi.
Farið var í gönguferð í Skálanesbjarg þar sem fuglalíf er fjölskrúðugt og fræddi Óli hópinn um líf og starf í Skálanesi.
Í Skálanesi dvelur nú hópur nema frá háskólanum í Glasgow í 8 vikur við rannsóknavinnu. En yfir sumartímann koma þangað fjölmargir hópar til dvalar.
sjá meira um Skálanes: http://www.skalanes.com/