4.bekkur Grunnskóla Eskifjarðar í heimsókn
Þann 23.janúar síðastliðinn litu krakkarnir í 4.bekk Grunnskóla Eskifjarðar við í heimsókn hér á Náttúrustofu Austurlands og Matís. Var heimsókn þessi liður í náms og skemmtiferð bekkjarins til Neskaupstaðar. Með þeim voru kennarar og námsráðgjafinn Brynja Garðarsdóttir en Brynja hefur undanfarin misseri komið með 4.bekk Nesskóla í sambærilega heimsókn.
Á Náttúrustofu fengu krakkarnir stutta kynningu á helstu verkefnum stofunnar og skoðuðu ýmislegt áhugavert. Starfsfólk Náttúrustofu þakkar fyrir heimsóknina.