Merktar ritur í Hafnarhólma
Náttúrustofa Norðausturlands merkti ritur í Hafnarhólma sumarið 2009. Við litmerkið sem fuglinn fékk um fótinn var festur svokallaður dagriti. Sumarið eftir voru þær endurveiddar og 13 dægurritar teknar af þeim og afgangurinn 7 stykki náðust 2011.
Dægurritarnir skrá staðsetningu fuglanna og má lesa um niðurstöður þessara athuganna á;
http://www.nna.is/frettir/nr/924/vetrarstodvar-ritu-afhjupadar/
Náttúrustofa Austurlands aðstoðaði við endurheimturnar í júní 2011;
http://www.na.is/index.php?option=com_content&view=article&id=298:ritur-a-borgarfirei-eystri&catid=1:frir&Itemid=155
Náttúrustofa Austurlands heimsótti riturnar í Hafnarhólma 4. apríl síðast liðinn og þá voru meðfylgjandi myndir teknar. Einn fugl sást með litmerki.