Lifandi leðurblaka á Reyðarfirði
Lifandi leðurblaka barst til Reyðarfjarðar með skipi í gærkvöldi. Það voru starfsmenn Eimskips á Mjóeyrarhöfn sem handsömuðu dýrið, en skipið var að koma frá Rotterdam.Leðurblakan hefur verið gefin til Náttúrugripasafnsins í Neskaupstað til varðveislu. Hún verður svæfð og stoppuð upp og mun í fyllingu tímans verða til sýnis á Safninu. Enn sem komið er hefur hún ekki verið greind til tegundar, en leðurblökuspámenn telja líkur á því að um sé að ræða evrópska leðurblöku, hugsanlega svokallaða trítilblöku (Pipistrellus nathusii). Sú tegund hefur fundist hér á landi nokkru sinnum, en aðalheimkynni hennar eru austanverð Evrópa.
Hér er hægt að fræðast um leðurblökur á Íslandi fram til ársins 2003 . Þá er gaman að geta þess að mýs telja að leðurblökur séu englar . Nánar verður greint frá leðurblökunni síðar.