Nýr forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands
Stjórn Náttúrustofu Austurlands hefur ráðið Kristínu
Ágústsdóttur í starf forstöðumanns Náttúrustofu
Austurlands frá og með 1. júní n.k. Kristín hefur
lokið B.Sc. námi í landfræði frá Háskóla Íslands og
M.Sc. námi í eðlisrænni landfræði og vistkerfisgreiningum frá Háskólanum í Lundi.
Auk þess hefur hún B.Ed. kennsluréttindi frá Háskólanum á Akureyri.
Hún hefur starfað við margs konar rannsóknir hjá Náttúrustofu Austurlands frá
árinu 1999 og þekkir því vel til starfseminnar. Einnig hefur hún starfað sem sérfræðingur
og snjóeftirlitsmaður hjá Veðurstofunni, sérfræðingur hjá Verkfræðistofunni Hönnun,
aðstoðarmaður Alþingismanns, fréttaritari Morgunblaðsins og setið í ýmsum nefndum á
vegum Fjarðabyggðar. Þá hefur hún starfað í hafrannsóknahópi hjá Marsýn við Háskóla
Íslands.