Vinningsmyndina á Haukur Steinn í 10 bekk Nesskóla
Haukur Steinn í 10. bekk Nesskóla átti bestu ljósmyndina í myndasamkeppni Náttúrustofu Austurlands sem haldinn var í tengslum við dag íslenskrar náttúru er þann 16. september s.l.
Við þökkum öllum þeim efnilegu ljósmyndurum sem tóku þátt, en þátttaka í myndaleiknum fór fram úr okkar björtustu vonum. Þegar allt kom til alls voru sendar inn hátt í 100 ljósmyndir af öllu Austurlandi. Efnistök voru mjög fjölbreytileg.
Því miður er Haukur Steinn ekki á Austurlandi í dag og fær því verðlaunin sem eru bókin Lífríki Íslands eftir Snorra Baldursson afhent á mánudaginn.
Nemendur í Djúpavogsskóla fá sérstakt hrós fyrir skemmtilega og frumlega myndaseríu sem þau sendu sameiginlega inn sem hópur.