Glettingur afmælisrit
Í sumar kom út 26.árg 1.-2.tbl. 65-66, Glettings sem var tileinkað 20 ára afmæli Náttúrustofu Austurlands, en hún fangaði 20 ára starfsafmæli árið 2015. Í blaðinu er m.a. rifjuð upp saga Stofunnar og fjallað almennt um hlutverk náttúrustofa á landinu sem eru nú átta talsins. Bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn Stofunnar sem og fjölmargir fræðimenn víða að eru meðal höfunda efnis. Þeim ber að þakka, sem og stjórn Útgáfufélags Glettings fyrir samstarfið og tækifærið.
Afmælisblaðið má nálgast hér á síðunni undir Útgefið efni , þá er velkomið að hafa samband við Stofuna og fá sent útprentað eintak í bréfapósti.