Náttúrustofuþing 2017
Fimmtudaginn 6.apríl verður hið árlega Náttúrustofuþing haldið á Húsavík. Þetta er í níunda sinn sem náttúrustofur landsins halda opna ráðstefnu utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem kynnt er brot af því sem unnið er að á Stofunum, auk þess kemur gestafyrirlesari frá Náttúrufræðistofnun Íslands.
Þingið er haldið á Fosshótel Húsavík, hefst kl 09:45 og stendur til 12:30.
Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá Náttúrustofuþingsins er fjölbreytt og áhugaverð og má geta þess að Kristín Ágústsdóttir og Skarphéðinn G. Þórisson munu fyrir hönd Náttúrustofu Austurlands halda fyrirlestur um hreindýrabeitarvist: Hvað og hvar bíta hreindýr ?
Dagskrána má nálgast með því að smella hér.