Fugladagurinn 6.maí 2017
Árleg fuglatalning og fuglaskoðun verður næstkomandi helgi, samvinnuferð Ferðafélags Fjarðamanna og Náttúrustofu Austurlands..
Laugardaginn 6. maí 2017 síðdegis, mæting kl 17 á Norðfirði við Leiruna og kl 18 á Reyðarfirði við Andapollinn.
Sérfræðingar leiðbeina og fræða og koma með „fuglaskóp“ en gott væri ef þátttakendur gætu mætt með sjónauka. Allir velkomnir.
Þann 10 maí næstkomandi er alþjóðlegi farfugladagurinn og er yfirskrift ársins 2017 "þeirra framtíð er okkar framtíð".
Á vef fuglaverndar má nálgast nánari upplýsingar um daginn.