Merkingar á hreinkúm
Náttúrustofa Austurlands merkti sex hreinkýr nú í mars. Verkefnið er hluti af rannsókn á burðarsvæðum hreindýra sem unnið er fyrir Landsvirkjun. Kragar með GPS voru hengdir um háls þriggja kúa á svæði 1 og sami fjöldi á svæði 2. Ívar Karl Hafliðason og Sveinbjörn Valur Jóhannsson tóku að sér verkið og stóðu sig með miklum sóma. Kýrnar voru veiddar með netbyssu frá snjósleða með leyfi yfirvalda. Kýrnar fengu allar nöfn og heita þær, Alda, Íva, Linda, Lína, Sveina og síðast en ekki síst Þúfa.
Á meðfylgjandi myndum eru ferðir kúnna sýndar síðustu daga en þær eru búnar að ganga með hálskragana mislengi. Þeim piltum er þökkuð frammistaðan og myndir sem birtast hér með af merkingunum eru teknar af þeim. Tvær myndir teknar úr flugvél um síðustu helgi eru af Lindu og Öldu.