Fréttir af senditækja gæsum
Við hjá Náttúrustofunni höfum flutt fréttir af heiðagæsum sem bera senditæki hér á síðunni síðan þær voru merktar í júlí 2017. Eftir sex mánaða vetrardvöl á Bretlandseyjum hafa þrjár þeirra verið að skila sér til baka undan farna daga. Þær spóka sig nú á Suðurlandi. Gæsin Erlín/Elín heldur til við Hellu og Kristín við Hof í Öræfum og Guðrún við Hornafjörð eins og sjá má á myndinni. Hér má fylgjast með ferðum þeirra.