Varptími heiðagæsa
Þessa dagana stendur varptími heiðagæsa yfir og hafa þrjár af senditækjagæsum stofunnar skilað sér á heimaslóðir. Ljóst er að gæsin Guðrún er orpin í Kringilsárrana en Kristín virðist vera að koma sér fyrir á Vesturöræfum. Lélegt samband hefur verið við gæsina Erlín/Elín sem sendi síðast staðsetningu frá sér í Jökuldalsheiði 10.maí, vonandi skýrist fljótlega hvert hún er komin. Meðfylgjandi mynd sýnir nýjustu ferla og staðsetningar og hægt er að fylgjast með þeim með því að smella hér.