Skaðræðistíð fyrir GPS dýrin okkar - Kristín og Linda allar
Þau leiðu tíðindi bárust að GPS kýrin okkar hún Linda sem merkt var í mars sl varð fyrir slysaskoti. GPS kýrnar eru vel merktar með litríka hálskraga, en því miður sást Linda ekki í kúahópi sem skotið var úr. Við erum í góðu samstarfi við hreindýraleiðsögumenn sem er dýrmætt og fáum við tækið til okkar. Stefnt er að því að koma því við fyrsta tækifæri í vetur á nýtt dýr.
Þá var ekki langt liðið á gæsaveiðitímann þegar heiðagæsin Kristín, sem er hluti af rannsóknaverkefni Náttúrustofu Austurlands, var skotin. Því miður er erfitt er að þekkja gæsirnar okkar frá öðrum í rökkrinu, en sem betur fer er veiðimönnum kunnugt um verkefnið og sendirinn hefur nú skilað sér til okkar. Við stefnum að því að setja sendinn á nýja gæs næsta sumar.