Náttúruvernd og efling byggða
Náttúrustofa Austurlands, í samvinnu við Austurbrú, Múlaþing og Fjarðabyggð, boðar alla áhugasama til þriggja vinnustofa um samþættingu náttúruverndar og eflingu byggða.
Til umræðu verða þrjú svæði í nágrenni Djúpavogs, Gerpissvæðið og Úthérað og eru fundirnir opnir öllum.
Verkefnið er hluti af byggðaáætlun en tengist ekki vinnu við friðlýsingar heldur er um hugmyndavinnu að ræða. Vinnustofurnar hefjast á kynningu verkefnisins og í framhaldi verður rætt um sýn þátttakenda á framtíð svæðanna og umsjón þeirra, yrðu þau friðlýst eða núverandi fyrirkomulagi haldið óbreyttu.
Nálgast má tvær áfangaskýrslur verkefnisins á heimasíðu Náttúrustofunnar (na.is) og mun lokaskýrsla byggja á niðurstöðum vinnustofunnar.
- Fundurinn um Búlandsnes, Eyfreyjunes og Álftafjörð verður haldinn fimmtudaginn 6. maí kl. 20:00-22:00
- Fundurinn um Gerpissvæðið verður haldinn þriðjudaginn 11. maí kl. 20:00-22:00
- Fundurinn um Úhérað verður haldinn miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00-22:00
Fundirnir fara fram á netinu. Slóðir á fundina eru birtar hér en einnig má nálgast þær á Facebook-viðburðum hvers fundar sem auglýstir eru á fésbókarsíðu Náttúrustofunnar. Þar er einnig hægt að tilkynna þátttöku og skoða dagskrár fundanna.
Slóð á fundinn á Djúpavogi - Upptaka frá fundinum - Skoðanakönnun
Slóð á fundinn um Gerpissvæðið - Upptaka 1. Þorri - Upptaka 2. Lilja - Upptaka 3. Guðrún - Skoðanakönnun
Slóð á fundinn um Úthérað - Skoðanakönnun
Vöðlavík
Héraðssandur