Við bjóðum Veroniku velkomna til starfa
Veronika Kavanová (M.Sc.) hóf störf á Náttúrustofu Austurlands í byrjun júlí sl. Hún mun sinna hreindýrarannsóknum en auk þess taka þátt fjölmörgum öðrum fjölbreyttum verkefnum stofunnar.
Hún er með meistaragráðu í dýrafræði (vistfræði spendýra) frá háskólanum í Suður-Bæheimi í Tékklandi og er núna í doktorsnámi þar með fókus á hjartardýr. Veronika hefur mikla reynslu af rannsókum á heimskautasvæðum, nánar tiltekið á Svalbarða, en einnig Ísland. Á Svalbarða rannsakaði hún hreindýrin þar, sem var viðfangsefni meistararitgerðar hennar og vísindagreinar. Auk áherslu á hjartardýr hefur Veronika aðstoðað við ýmsar rannsóknir, t.d. tengdum gangverki jökla, þróun landslags, mengun o.fl.