Náttúrufræðingur óskast
Við leitum að öflugum náttúrufræðingum til að sinna rannsóknum á fuglum, gróðri sem og öðrum náttúrufarsrannsóknum. Störfin eru fjölbreytt og felast m.a. í mótun vöktunar og rannsókna bæði smærri og stærri verkefna, rannsóknum á vettvangi, greiningu gagna og skýrslugerð. Auk rannsókna á sérsviði mun viðkomandi taka þátt í öðrum verkefnum, bæði vettvangsvinnu og úrvinnslu.
Um er að ræða 100% starf eða eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt stofnanasamningi Náttúrustofu Austurlands við FÍN. Ráðið er tímabundið í eitt ár til reynslu en gert er ráð fyrir að um framtíðastarf sé að ræða. Búseta á Austurlandi er skilyrði. Gert er ráð fyrir að ráða í fleiri en eitt starf. Umsóknir geta gilt í tólf mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að hanna og stýra bæði stærri og smærri rannsóknum á fuglum eða gróðri, vistfræði og mögulega öðrum tilfallandi rannsóknum á náttúrufari. Starfið innifelur vinnu á vettvangi, úrvinnslu og skýrsluskrif.
Menntunar- og hæfniskröfur
Meistaragráða í náttúrufræðum, t.d á sviði fugla, gróðurs eða vistfræði
Færni í greiningu og framsetningu gagna, t.d. í landupplýsingakerfum, R eða sambærilegum forritum
Færni í skýrsluskrifum
Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Færni í mannlegum samskiptum
Geta til þátttöku í lengri vettvangsferðum fjarri heimili
Vilji til að ganga í ólík störf
Mjög góð íslensku – og enskukunnátta nauðsynleg.
Ökupróf
Starfsreynsla á fagsviði er æskileg
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Frekari upplýsingar veitir Kristín Ágústsdóttir forstöðumaður (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.).
Umsókn með ferilskrá, meðmælum og bréfi þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið sendist á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með fyrirsögninni: Starfsumsókn 2025. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.