Svartfugla rekur á land á Austfjörðum
Í vikunni tóku fréttir að berast af dauðum svartfuglum í fjörum á Austfjörðum. Þriðjudaginn 12 janúar fóru starfsmenn Náttúrustofunnar á stúfana og könnuðu fjörur frá Berufirði að botni Reyðarfjarðar. Alls fundust hræ 237 svartfugla, mest álkur, langvíur og haftyrðlar. Hræin voru flest orðin nokkuð skorpin og velkt en af þeim fuglum sem voru nokkuð heilir mátti meta að flestir, þó ekki allir, fuglanna voru mjög horaðir. Rannsóknir benda til þess að sjófuglar eigi erfitt með að afla sér fæðu þegar veður eru válind og felliatburðir þar sem þúsundir jafnvel tugir þúsunda sjófugla rekur á land eru þekktir1. Veturinn 2001 - 2002 varð einn slíkur fellir hér við land og var þá áætlað að tugir þúsunda svartfugla hafi horfallið í hafinu vestur, norður og austur af Íslandi2. Ekki er þó loku fyrir það skotið að einhverjir fuglanna sem nú rekur á land hafi drepist af öðrum orsökum, t.d. hafi einhverjir særst af völdum veiða en mikil svartfugla-veiði hefur verið á Austfjörðum í haust og í vetur. Eins er möguleiki, þó lítill sé, á að sjúkdómar á borð við fuglaflensu geti valdið slíkum fjölda-dauða og því ráðlegast að fara að öllu með gát og ekki handleika sjórekna fugla. MAST hefur fengið sýni til rannsókna en Náttúrustofan fylgist áfram með ástandinu og óskar frekari fregna ef fólk er á ferli og verður vart við dauða eða deyjandi fugla í fjörum.
Ljósmyndir: SGÞ
1 Manon Clairbaux, Paul Mathewson, Warren Porter, Jérôme Fort, Hallvard Strøm, Børge Moe, Per Fauchald, Sebastien Descamps, Hálfdán H. Helgason, Vegard S. Bråthen, Benjamin Merkel, Tycho Anker-Nilssen, Ingar S. Bringsvor, Olivier Chastel, Signe Christensen-Dalsgaard, Jóhannis Danielsen, Francis Daunt, Nina Dehnhard, Kjell Einar Erikstad, Alexey Ezhov, Maria Gavrilo, Yuri Krasnov, Magdalene Langset, Svein-H. Lorentsen, Mark Newell, Bergur Olsen, Tone K. Reiertsen, Geir Helge Systad, Thorkell L. Thórarinsson, Mark Baran, Tony Diamond, Annette L. Fayet, Michelle G. Fitzsimmons, Morten Frederiksen, Hugh G. Gilchrist, Tim Guilford, Nicholas P. Huffeldt, Mark Jessopp, Kasper L. Johansen, Amy-Lee Kouwenberg, Jannie F. Linnebjerg, Heather L. Major, Laura McFarlane Tranquilla, Mark Mallory, Flemming R. Merkel, William Montevecchi, Anders Mosbech, Aevar Petersen, David Grémillet. 2021. North Atlantic winter cyclones starve seabirds, Current Biology, Volume 31, Issue 17, Pages 3964-3971.e3, ISSN 0960-9822, https://doi.org/10.1016/j.cub.2021.06.059.
2 Ólafur K. Nielsen & Ólafur Einarsson 2004. Svartfugladauðinn mikli veturinn 2001-2002. – Náttúrufr. 72: 117-127.