Blómadagurinn 2009
Dagur hinna viltu blóma eða blómadagurinn eins og hann er oft kallaður var sunnudaginn 14.júní síðastliðinn farið var í skipulagðar skoðanaferðir á þrem stöðum á austurlandi.
Neskaupstaður:
Fjöldi gesta: 16, þar af 5 börn.
Gengið var út í fólkvang Neskaupstaðar um Haga, Urðir og upp í Skálasnið. Sjöstjarna(Trientalis europaea) var í blóma og af fremur sjaldséðum tegundum fannst villilín(Linum catharicum) í brekku ofan við göngustíg og í gróðursælli brekku við Skálasnið voru þúsundblaðrós(Athyrium distentifolium) og skógfjóla(Viola riviniana) skoðuð. Leiðsögn var í höndum Gerðar Guðmundsdóttur og Erlínar Emmu Jóhannsdóttur á Náttúrustofu Austurlands
Fáskrúðsfjörður:
Fjöldi gesta: 12, þar af 1 barn.
Þungbúið en þurrt veður. Mikið sást af sjöstjörnu (Trientalis europaea). Þyrnirósin (Rosa pimpinellifolia) var skoðuð ásamt öðrum gróðri í brekkum, við læki og í votum dældum. Leiðsögn var í höndum Líneikar Önnu Sævarsdóttur.
Egilsstaðir:
Fjöldi gesta 13.
Á Egilsstöðum var gengið um Egilsstaðaskóg innan þjóðvegar í blíðskaparveðri frá 9:30 til hádegis og endað á Hömrum. Blæöspin var sérstaklega skoðuð en af sjaldgæfari plöntum fundust sjöstjarna (Trientalis europaea) og ferlaufungur(Paris quadrifolia). Í gönguferðina mættu 13 manns og skoðuðu blóm undir leiðsögn skarphéðins G. Þórissonar á Náttúrustofu Austurlands.
Tags: gróður, plöntur, blómadagurinn, blóm