Hreindýrafígúrur
Hreindýrin eru notuð í æ ríkari mæli sem einkenni Austurlands. Hreindýrafígúra skreytir margar auglýsingar, hreindýr taka á móti flugfarþegum á Egilsstöðum, Sprettur sporlangi var einkennisdýr landsmóts ÚÍA, hreindýrasetur er á Skjöldólfsstöðum og hreindýraskilti eru víða við þjóðvegi Austurlands. Á Djúpavogi má sjá hreindýr gert úr hornum. Unnur Malmquist Jónsdóttir tók mynd af listamanninum Skúla Benediktssyni þann 17. júní og veitti Náttúrustofunni leyfi til að nota hana. Einnig fylgja með nokkrar fótósjoppaðar útgáfur af hreintarfi Skúla.
Tags: hreindýr