Öskudagur 2011
Öskudagurinn var í gær, og fengum við á Náttúrustofu Austurlands og Matís heimsóknir frá syngjandi börnum sem létu ekki kulda og kóf standa í vegi fyrir því að rölta á milli fyrirtækja syngja og fá í staðinn gotterí í pokann sinn. Það er liðin sú tíð að fólk og þó aðallega börn hengi öskupoka hvert á annað en í stað þess kominn sá siður að ganga milli fyrirtækja og stofnanna og syngja og fá nammi fyrir.
þetta lífgar óneitanlega uppá tilveruna og gaman að sjá hinar ýmsu múnderingar hjá krökkunum, við höfum haft það fyrir reglu að reyna að taka myndir af öllum sem koma og syngja, hér má sjá myndir sem teknar voru í gær.
Tags: öskudagur