Vinnustofa
Vinnustofa í greiningu grasa og stara var haldin á Reyðarfirði um helgina. Þekkingarnet Austurlands stóð fyrir vinnustofunni og leiðbeinandi var Guðrún Á. Jónsdóttir
Nokkrir starfsmenn Náttúrustofunnar tóku þátt ásamt fleirum og þótti vinnustofan takast mjög vel. Á laugardag var gengið í Hólmanesið og þar safnað grösum og störum í ýmsum gróðurlendum en einnig var annar gróður skoðaður. Þoka var í upphafi ferðar en svo birti til.
Á sunnudag var unnið inni við greiningar á því sem safnað var deginum áður og var sett upp sýning af afrakstrinum. Sú hugmynd kom upp hjá hópnum að þarna væri kominn vísir að flóurvinafélagi á Austurlandi og að stefnt yrði að því að hafa samskonar hitting að ári. Ljósmyndirnar sem fylgja með fréttinni koma frá Ínu Gísladóttur og Ara Ben.
Tags: fræðsla