Dagur hinna villtu blóma
Sunnudaginn 14 júní 2015.
Gönguferð með blómaskoðun á Egilsstöðum og í Neskaupstað
Frítt fyrir alla, góð samverustund fyrir alla fjölskylduna.
Nánari upplýsingar fyrir allt landið á vefnum.
http://floraislands.is/Annad/blomdag.html
Egilsstaðir
Mæting kl. 13:00 á bílastæði við göngustíg að Fardagafossi. Gengið upp með Miðhúsaá að fossinum. Leiðsögn: Skarphéðinn G. Þórisson.
ATH breyttur tími miða við auglýsingu í Dagskránni.
Neskaupstaður
Mæting kl 10:00 á bílastæðinu við fólkvanginn (Norðfjarðavita). Gengið verður út í fólkvang Neskaupstaðar um Haga, Urðir og upp í Skálasnið.
Leiðsögn: Guðrún Óskarsdóttir og Elín Guðmundsdóttir.
Tags: gróður, plöntur, blómadagurinn, blóm