Senditækjakýrin Hengla
Þann 18. janúar náðist hreinkýr við Henglavík í Hamarsfirði og fékk hálskraga með staðsetningartæki. Fyrir leiðangrinum fór Skúli Benediktsson. Að sjálfsögðu var hún skýrð Hengla. Til stóð að ná tveimur kúm til viðbótar í Geithella- og Hofsdal en það mun bíða næsta vetrar.
Heimamenn hafa sýnt kúnni og ferðum hennar mikinn áhuga og birtast vikulega upplýsingar um hana á djupivogur.is.
Tilgangur verkefnisins er að afla upplýsinga um landnotkun og ferðir dýra í Djúpavogi og einkum og sér í lagi hvort einstaklingar í Álftafjarðarhjörð heimsæki Snæfellshjörðina.
Á meðfylgjandi kortum eru ferðir hennar sýndar síðustu mánuði. Nú gengur hún í Búlandsdal í hjörð sem telur um 90 hreindýr samkvæmt Andrési Skúlasyni en hann hefur verið duglegur að fylgjast með henni.
Tags: hreindýr