Hreinkýr bera á láglendi
Annars slagið bera hreinkýr á láglendi og ganga þá oft sumarlangt einar en sameinast ekki í stórar hjarðir eins og þær flesta gera inn á heiðum og upp til fjalla (1. mynd. Hópur kúa og kálfa í Þóriseyjum 27. júní 2012) . Ein slík kýr er nú út á Héraðssandi (2.-3. mynd). Vorið 2008 bar kýr stutt utan við Mýnes í Eiðaþinghá (4. mynd).
Fyrir stuttu birtist frétt hjá Náttúrustofu Suðausturlands um nýborinn hreinkálf við Þorgeirsstaði í Lóni (http://nattsa.is/hreindyrskalfur-i-loni/). Vorið 2012 rákust starfsmenn Náttúrustofu Austurlands á nýborna kú á túninu við Syðri Fjörð í Lóni. Meðfylgjandi myndband sýnir hana; https://www.dropbox.com/s/73ujvfrmqow3tha/MVI_3581.MOV?dl=0