Tæknidagurinn í fjórða sinn.
Nú um nýliðna helgi var Tæknidagur fjölskyldunnar haldinn í fjórða sinn, fjöldi gesta kom á Tæknidaginn og margir langt að, samkvæmt skráningu í gestabók var nýtt aðsóknarmet slegið. Náttúrustofa Austurlands tók á móti gestum og gangandi með myndasýningu, fróðleik um hreindýr, sýndi m.a. senditæki sem sett hafa verið á hreindýr og netbyssu sem notuð er ef fanga þarf hreindýr í rannsóknaskyni. Einnig var í boði að skoða skordýr í víðsjá og nota spjaldtölvu sem málmleitartæki, að ógleymdum sandkassanum sem er samstarfsverkefni með Advania, Trackwell og Verkmenntaskóla Austurlands.
Á meðfylgjandi mynd má sjá áhugasama krakka leita með "málmleitartæki"
Tags: tæknidagurinn