Gammaygla (Autographa gamma)
Gammayglan er flökkufiðrildi sem á heimkynni í Evrópu og Asíu og flakkar á hverju ári norður á bóginn allt til Íslands og jafnvel norðar .
Á haustdögum fannst eitt slíkt við Kofalæk á Vesturöræfum við Hálslón (meðfylgjandi mynd) sem gæti verið eitt af þeim sem komu til landsins seinnihluta ágústmánaðar þegar vart var einnar slíkrar fiðrildagöngu til landsins samkvæmt upplýsingum Erlings Ólafssonar skordýrafræðings á Náttúrufræðistofnun Íslands.
Tegundin hefur fundist á mest öllu landinu en einna mest á Suður- og Austurlandi og þá helst á láglendi. Það var því áhugavert að finna það á Vesturöræfum 21. september s.l.