Í hreindýraflugi 16. mars sást hreinkýr flækt í vírnet við Sænautavatn stutt frá Rangalóni. Seinna um daginn var hún leyst úr prísundinni með hjálp Eiríks Skjaldarsonar. Tækifærið var notað til að hengja staðsetningartæki um háls hennar en hún var skýrð Ranga. Eru kýrnar nú þrjár í Jökuldalsheiðinni með staðsetningartæki um hálsinn, Ranga, Ána og Hlíðarenda.
Fræðsluerindi febrúarmánaðar verður næstkomandi fimmtudag 25 febrúar, kl 12:15-12:45. Að þessu sinni er erindið í höndum Náttúrustofu Suðurlands og er það Ingvar A Sigurðsson sem flytur erindi sitt Hnyðlingar í íslenskum gosmyndunum.
Með því að smella á myndina hér til hliðar má sjá hvar hægt er að fylgjast með erindinu.
Leyft verður að veiða 1.272 hreindýr í haust samkvæmt skilavef veiðikorta hjá Umhverfisstofnun. Ekki verður leyft að fella hreindýrskálfa á næsta veiðitímabili og er það breyting frá fyrri árum. Í fyrra voru gefin út 1.333 veiðileyfi á hreindýr.
Þann 8. janúar var hengt senditæki á kú við Hlíðarenda og þann 10. á aðra við Ánavatn. Voru þær skírðar út frá því. Kýrnar voru heimsóttar þann 17. janúar, Hlíðarenda var við Vopnafjarðarveg í 84 dýra hópi og Ána í Arnórsstaðamúlanum í 276 dýra hópi.