Nú er náttúrufræðinámskeiðinu sem haldið var í Neskaupstað lokið. Tíu hressir og áhugasamir krakkar tóku þátt og var margt og mikið brallað alla dagana. Það sem stóð upp úr hjá flestum var ferðin upp á Hólatjarnir, en þar voru vatnadýr háfuð.
Nú er líf komið í fiskabúrið á Náttúrugripasafninu í Neskaupstað. Þar má meðal annars sjá krossfiska, ígulker, sprettfiska, klettadoppur, beitukónga, kræklinga o.fl
Í júní verður boðið upp á tvö vikunámskeið í náttúrufræðum fyrir krakka sem eru fædd 1999-2001. Markmið námskeiðsins er að kynna krökkunum fyrir fjölbreyttu plöntu-og dýralífi í íslenskri náttúru og efla þekkingu þeirra í náttúrufræðum og vísindalegum vinnubrögðum. Farið verður í nokkrar vettvangsferðir meðal annars verður vatnalífríki í tjörnum og lækjum kannað, plöntur skoðaðar, fjöruferð og litið eftir fuglum.
Við hjá Náttúrustofu Austurlands og Matís fengum skemmtilega heimsókn í morgun frá Leikskólabörnum af leikskólanum Sólvöllum. Það voru 11 börn af deildinni Sólbakka sem voru ásamt starfsfólki deildarinnar á göngu í góða veðrinu þegar ákveðið var að þyggja boð um að koma í heimsókn á Náttúrustofuna og skoða hann Hákon humar sem er gæludýr Áslaugar en dóttir hennar er einmitt á Sólbakka.
Hin árlega fuglaskoðun Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags Fjarðamanna fór fram í blíðskaparveðri á leirunum í Reyðarfirði og Norðfirði laugardaginn 8.maí en dagurinn er Alþjóðlegur Farfugladagur. Að þessu sinni var hann haldinn eftir hádegi vegna þess hversu snemma morgunfjaran var.
Góð mæting var á báðum stöðum á Reyðarfirði mættu 13 manns en á Norðfirði mættu 25.