Grátrönur á Héraðssandi
Pétur Örn Hjaltason sendi stofunni skilaboð um að fjórar grátrönur væru út á Héraðssandi. Náttúrustofan snaraðist þangað í morgun og náði myndum af þeim. Um leið var það staðfest að einungis væri um fullorðna fugla að ræða. Greinilegt var að þær höfðu verið í berjamó. Tvær grátrönur höfðu sést fyrr í sumar nálægt Selfljótinu og aðrar tvær við Fögruhlíðará. Vonandi ber þessi fjölgun vott um að ungar sem skriðu úr eggi á Héraðssandi leiti á uppeldisstöðvarnar.
Hér má sjá myndirnar af grátrönunum við Fögruhliðará 27.júlí 2019