Skila þær sér austur yfir, fyrir burð ?
Hreindýrin "virða" stundum ekki þau mörk sem við höfum ákveðið. Senditækjakýr hafa hingað til "virt" mörkin á milli veiðisvæða 1 og 2 sem liggja eftir Jökulsá á Dal. Fyrir nokkrum vikum fór Fljótsdalsheiðarkýrin Lína norður yfir og þann 25. mars fylgdi Jenný í fótspor hennar. Það verður spennandi að sjá hvort þær skili sér ekki austur yfir fyrir burð.