Vorboðarnir hver af öðrum
Það er vor í lofti og er blómstrandi vetrarblóm (Saxifraga oppositifolia), eða vetrarsteinbrjótur , einn af fyrstu vorboðunum úr plönturíkinu. Starfsmaður Náttúrustofu Austurlands rakst á nokkrar plöntur í blóma í vettvangsferð sinni í Reyðarfirði á dögunum.
Vetrarblóm eru af steinbrjótsætt (Saxifragaceae) og blómstra með fyrstu blómum á vorin eða í apríl en stundum í lok mars við góðar aðstæður. Plantan er mjög harðgerð og finnst í allt 1600 m hæð. Á láglendi má finna hana á melum eða á klettarindum.
Á vefjum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Lystigarðs Akureyrar má finna fróðleik um vetrarblóm.
Heimildir:
Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhallsdóttir (2018). Flóra Íslands, blómplöntur og byrkningar. Vaka-Helgafell, Reykjavík.
Hörður Kristinsson (2010). Íslenska plöntuhandbókin, blómplöntur og byrkningar. Mál og menning, Reykjavík.