Það voru góðir gestir sem litu hér við í gær en það voru þau Jón Ingi og Sigrún frá Menntaskólanum á Egilsstöðum í fylgd Gunnars Ólafssonar kennara í VA, með þeim í för voru þær Doreen og Pat frá skóla í Aberdee og Carlos og Suzanna frá Madeira. Voru þau í viku tíma á Egilsstöðum ásamt nokkrum nemendum úr þeirra skólum er heimsókn þessi partur af svokölluðu Comeniusarverkefni. Gunnar tók á móti þeim og sýndi þeim húsnæði Verkmenntaskóla Austurlands og að sjálfsögðu litu þau við hér hjá okkur í leiðinni.
Í dag er Öskudagurinn veðrið leikur við okkur bjartur og fagur dagur. Það er liðin sú tíð að fólk og þó aðallega börn hengi öskupoka hvert á annað en í stað þess kominn sá siður að ganga milli fyrirtækja og stofnanna og syngja og fá nammi fyrir. Nokkrir hópar af börnum hafa komið við hér í dag og sungið fyrir okkur , þetta lífgar óneitanlega uppá tilveruna og gaman að sjá hinar ýmsu múnderingar hjá krökkunum.
Þann voru 2. febrúar voru 106 hreindýr neðan við Hnútu og 21 tarfur aðeins utar á Eyvindardalnum. Þremur dögum seinna voru 44 hreindýr skv Páli Leifssyni inn á Eskifjarðardal en tæpum tveimur vikum fyrr sást til 12 dýra utan við Áreyjar. Samtals gerir þetta 183 hreindýr. Dýrin hafa verið að fikra sig norður eftir Fagradalnum, þann 21. janúar sá Jón Guðmundsson Seyðfirðingur 61 dýr við skýlið en þann 28. desember var þessi hópur nokkuð sunnar á dalnum og á sama tíma um 30 vestan ár neðan Biskupshlaups. Háttarlag og fjöldi dýra á þessu svæði er nú mjög svipað og í fyrravetur.
Síðastliðinn föstudag (þann 25.janúar 2008) barst stofunni bréf frá Jóni Guðmundssyni í Neskaupstað en þegar hann kom heim úr vinnu þann dag tók á móti honum óvæntur gestur, fugl lá í garðinum og virtist mjög dasaður og gat ekki hreyft sig. Fuglinn sá reyndist vera Skógarsnípa sem er flækingur á Íslandi, árlega sjást Skógarsnípur hér á landi og grunur leikur á að varp geti leynst.