Fimmtudaginn 31. mars nk. kl. 12:15-12:45 flytur Þorleifur Eiríksson, líffræðingur á Náttúrustofu Vestfjarða, erindi sitt: ,,Er úrgangur frá fiskeldi vandamál ? ”. Með því að smella á auglýsinguna hér til hliðar má sjá hvar hægt er að fylgjast með erindinu.
Leifur Þorkelsson starfsmaður HAUST færði Náttúrustofunni engisprettu sem fannst í káli í grunnskólanum á Egilsstöðum þann 16. mars. Hún komst síðan í fréttirnar sem varð henni að fjörtjóni. Hér fylgir með bréf Leifs til Þorgerðar Sigurðardóttur birt með góðfúslegu leyfi Leifs: Sæl vertu Þorgerður Þessi vinkona ykkar sem heimsótti ykkur í morgun er engispretta eins og þú hefur trúlega frétt, Skarphéðinn hjá Náttúrustofunni telur líklegast að hér sé um að ræða engisprettu sem ættuð er frá Egyptalandi. Hún kemur frá grænmetisframleiðanda sem er staðsettur á Murcia svæðinu á Spáni. Grænmetið er flutt með flutningabíl frá Spáni til Hollands og tekur sú ferð 3-4 daga. Í Hollandi fara síðan kassarnir í gám og með skipi frá Rotterdam til íslands og tekur sú ferð viku.
Í Landanum í gærkvöldi mátti sjá umfjöllun um hreindýr. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Skarphéðinn G. Þórisson hreindýrasérfræðing og starfsmann Náttúrustofu Austurlands um dýrin og þær rannsóknir sem í gangi eru.
Umfjöllun Landans má sjá á vefsíðu RÚV eða með því að smellahér
Dýrum hefur fækkað mikið við Háreksstaðaleið og Reyðarfjarðarhjörðin hefur lítið gengið á Fagradalnum undanfarnar vikur. Eins og athuganir Náttúrustofunnar sýna er svipuð hætta fyrir hendi allt fram í maí þó að með hækkandi sól ætti frekar að draga úr henni. Því er ekki talin ástæða til að skilgreina þau sem sérstök hættusvæði. Hætta er enn viðvarandi í Lóni. Auk þess hefur fjöldi dýra verið við veginn á Mýrum og þær nú skilgreindar sem hættusvæði.
Eftir sem áður er mikilvægt er að vegfarendur geri sér grein fyrir að hreindýrin geta þvælst víðar um vegi Austurlands.
Tarfur sem Reimar Ásgeirsson merkti sem kálf í burðarathugunarferð Náttúrustofu Austurlands vorið 2008, sást nýverið utan við Jóku stutt ofan vegar í Skriðdal. Tarfurinn hafði verið merktur við Þrælaháls syðst á Fljótsdalsheiði 17. maí 2008. Hann hefur þá líklega verið innan við sólahrings gamall.
Öskudagurinn var í gær, og fengum við á Náttúrustofu Austurlands og Matís heimsóknir frá syngjandi börnum sem létu ekki kulda og kóf standa í vegi fyrir því að rölta á milli fyrirtækja syngja og fá í staðinn gotterí í pokann sinn. Það er liðin sú tíð að fólk og þó aðallega börn hengi öskupoka hvert á annað en í stað þess kominn sá siður að ganga milli fyrirtækja og stofnanna og syngja og fá nammi fyrir.