Í júní verður boðið upp á fimmdaga námskeið í náttúrufræðum fyrir 8-10 ára börn. Markmið námskeiðsins er að kynna krökkum fjölbreytt dýra- og plöntulíf í íslenskri náttúru. Farið verður í fjöruferð, í læki og tjarnir, upp í skógrækt og í fleiri vettvangsferðir. Fuglar verða skoðaðir, smádýrum og plöntum safnað og komið með í hús og skoðað undir víðsjá og þau greind. Enn er laust á námskeiðið í Neskaupstað 27.júní -1.júlí.
Á tímabilinu febrúar 2009 til mars 2010 voru sett staðsetningartæki á 12 hreinkýr í þeim tilgangi að rannsaka hagagöngu þeirra. Staðsetningartækin eru hálskragar með GPS-búnaði sem settir eru á dýrin. Hálskragarnir senda svo frá sér sms -skeyti einu sinni á sólahring með 8 staðsetningum dýranna. Stundum eru kýrnar utan þjónustusvæðis og þá safnast upplýsingarnar einfaldlega upp og skila sér svo þegar dýrin detta í samband. Rannsóknin er hluti af meistaraverkefni Skarphéðins G. Þórissonar við Landbúnaðarháskóla Íslands og má sjá umfjöllun um það hér. Einnig er hér líka um að ræða viðbótarvöktun vegna Kárahnjúkavirkjunar og verkefnið því styrkt af Landsvirkjun.
Fyrsta kýrin fékk staðsetningarbúnað þann 14. febrúar 2009 og fékk hún nafnið Melrakka. Allar kýrnar hafa fengið nafn sem tengist staðnum þar sem þær voru merktar. Rafhlaðan í öllum tækjum er nú búin og því hafa allar kýrnar þagnað. Síðasta sendingin kom frá Röngu þann 2. júní 2011.
Í júní verður boðið upp á tvö fimm daga námskeið í náttúrufræðum fyrir 8-10 ára börn. Markmið námskeiðsins er að kynna krökkum fjölbreytt dýra- og plöntulíf í íslenskri náttúru. Farið verður í fjöruferð, í læki og tjarnir, upp í skógrækt og í fleiri vettvangsferðir. Fuglar verða skoðaðir, smádýrum og plöntum safnað og komið með í hús og skoðað undir víðsjá og þau greind.
Námskeið 1: 20-24. júní á Eskifirði. Hluti af dagskrá gönguvikunnar “á fætur í Fjarðabyggð” Námskeið 2: 27.júní -1.júlí í Neskaupstað Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9-12 hvern dag og mæta þátttakendur með nesti, stígvél og hlífðarföt. Innritun fer fram hjá Náttúrustofu Austurlands á netfangið na[hjá]na.is , fram til 15. júní á námskeiðið á Eskifirði en 22.júní á námskeiðið í Neskaupstað. Námskeiðsgjald er 3000 kr. Athugið einungis 10 börn komast á hvort námskeið.
Föstudaginn 3.júní frá kl 14:00-15:00 verður fræðsla um fiðrildi í Náttúrugripasafninu í Neskaupstað. Boðið verður upp á fyrirlestur um fiðrildi og gefst fólki kostur á að koma með og tæma fiðrildagildru sem er staðsett hjá sjálfvirku veðurstöðinni hér í Neskaupstað. Allir velkomnir frítt inn.
Norðan áhlaup gekk yfir Norður- og Austurland 20. maí s.l. og stóð yfir í nokkra daga. Sökum þess hve tiltölulega milt var í veðri, lagðist þungur snjór yfir og gerði víða jarðleysur. Viku síðar hlýnaði og snjó tók upp hægt og sígandi og áhrif hretsins komu betur í ljós. Sjá fréttina í heild sinni með því að smella hér Í kvöldfréttum Rúv í sjónvarpinu í gærkvöld mátti sjá viðtal við Halldór W. Stefánsson um áhrif hretsins.