Ljósin voru tendruð á fiðrildagildrum í Hallormsstað, á Jökuldal og í Neskaupstað föstudaginn 15.apríl, Það voru ólíkt betri veður skilyrði á föstudaginn en á sama tíma fyrir ári síðan en fiðrildagildrunum er stungið í samband sama dag um land allt. Er þetta annað árið sem Náttúrustofa Austurlands tekur þátt í verkefninu sem er unnið í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands og er partur af norrænu vöktunarverkefni Moth Monitoring Scheme, en það er verkefni sem nær til Norðurlandanna, Eystrarsaltsríkjanna og NV-Rússlands. Markmið verkefnisins er að nota fiðrildi sem vísihóp til vöktunar á umhverfinu. Á vef Náttúrufræðistofnunnar Íslands má lesa nánar um fiðrildavöktun á íslandi.
Þann 10. ágúst 1994 fönguðu Bjarke Laubek og félagar fullorðna álft í sárum á Geldingavatni í Tunguheiði og merktu. Hún fékk stálhring á hægri fót og gult plastmerki um hálsinn sem á stóð 3J05. Hún hefur því verið að minnsta kosti 4-5 ára gömul þegar hún var merkt. Frá merkingu til dagsins í dag eru liðin 18 ár. Þann 10. apríl s.l. sást þessi fugl ásamt maka sínum í akri á Úthéraði. Sjá fréttina í heild með því að smella hér