Fyrstu trjágeitungsbúin á Íslandi fundust m.a. á Neskaupstað 1982. Margir óttast þessa iðjusömu nýbúa en þó eru til undantekningar á því. Á Egilsstöðum búa Þórhallur Þorsteinsson og Dagný Pálsdóttir en í garði þeirra voru a.m.k. tvö trjágeitungsbú í sumar, annað undir sólpalli og hitt í gróðurhúsi. Gagnkvæm virðing ríkir í þessu sambýli og segir Þórhallur að hann hafi mikið yndi af því að fylgjast með þessum vinum sínum sem aldrei hafa svo mikið sem reynt að stinga hann.
Dagur íslenskrar náttúru er þann 16. september n.k.
Náttúrustofa Austurlands ætlar af því tilefni að efna til
ljós - og/eða hreyfimyndasamkeppni.
Leikreglur eru eftirfarandi:
1. Myndir þarf að taka 14. til 18. september 2015. 2. Myndir þarf að merkja myllumerkjunum #dinna15 og #nattaust, á Facebook eða Instagram eða senda á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 3. Myndum þarf að skila í síðasta lagi á miðnætti 18. september. 4. Hver þátttakandi (einstaklingur eða hópur) má að hámarki senda inn 5 myndir. 5. Ef myndir sýna fólk þarf að liggja fyrir samþykki viðkomandi um að birta megi mynd á vefmiðlum og/eða í útprentuðu efni á vegum Náttúrustofunnar.
Verðlaun eru veitt fyrir bestu myndina m.t.t. tengingar við íslenska náttúru, myndbyggingar, fegurðar og frumleika. Vinningsmyndin mun prýða forsíðu ársskýrslu Náttúrustofunnar.
Við hvetjum skóla á Austurlandi til taka þátt og færa skólastofuna út í íslenska náttúru þessa viku.
Bestu kveðjur frá starfsfólk Náttúrustofu Austurlands
Dagana 7.-8. ágúst fóru starfsmenn Náttúrustofu Austurlands í ferð upp í Kringilsárrana. Sú ferð var liður í verkefni sem Náttúrustofan vinnur að beiðni Landsvirkjunar
og felur í sér vöktun mögulegra breytinga á gróðri sem kunna að verða í Kringilsárrana, á Vesturöræfum og Fljótsdalsheiði í kjölfar myndunar Hálslóns.
Farið var í fyrstu ferðina upp í Kringilsárrana í þessum tilgangi sumarið 2006, áður en lónið var fyllt og ferðin sem farin var í ár var sú næsta í röðinni.
Heiðagæsir voru taldar á Snæfellsöræfum 17. júlí 2015. Þegar niðurstöður eru skoðaðar fyrir Hálslón og Kringilsár- og Sauðárrana sést að þar finnst nú aðeins 57% af fullorðnum fuglum miðað við talninguna 2014. Nánari umfjöllun um þetta og meira til má sjá hér.
Þann 9. júlí bjargaði breskur gönguhópur fálka úr netagirðingu í Viðfirði. Berglind Ingvarsdóttir á Mjóeyri sagði að hann hefði verið dasaður og ekki flogið eftir björgunina. Hún bætti síðan við; „Eftir samtal við Náttúrufræðistofnun var það úr að freista þess að ná fuglinum og senda í húsdýragarðinn til aðhlynningar.... Já, við fórum út í Viðfjörð til að athuga með hann [12.7.2015]. Þá var hann á göngubrúnni og makinn vældi heil ósköp upp í hlíðinni fyrir ofan. Þegar við svo komum að honum var hann kominn í fjöruna og flaug til fjalls þegar við nálguðumst hann, flugið virtist frekar erfitt fyrir hann í fyrstu en svo lagaðist það heldur og saman flaug þetta flotta par lengst upp til fjalls.“