Jóhann Finnur Sigurjónsson B.Sc. líffræðingur hóf störf á Náttúrustofu Austurlands í byrjun janúar. Jóhann Finnur starfaði áður við Háskólann Hólum sem aðstoðarmaður við fiskeldisrannsóknir og hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs við greiningar á smádýrasýnum. Í lokaverkefni sínu við Háskóla Íslands bar hann saman sumar- og vetrarfæðu eyruglu á Íslandi. Við bjóðum Jóhann Finn velkomin til starfa.
Náttúrustofan er þakklát fyrir allar athugasemdir og ábendingar og var tekið tillit til þeirra. Lokaniðurstaðan er sú að lagt er til að hreindýrakvóti ársins 2023 verði 901 dýr.
Einungis er tekið við skriflegum athugasemdum við kvótatillögu Náttúrustofu Austurlands
(ekki er tekið við athugasemdum í gegnum síma) og skulu þær berast stofunni fyrir miðnætti 25. nóvembers 2022 með eftirfarandi hætti: 1. Í tölvupósti á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. – vinsamlega hafið fyrirsögnina „kvóti 2023“ 2. Í skilaboðum (messenger) til Náttúrustofu Austurlands á Facebook 3. Með því að skrá inn í form í gegnum heimasíðu Náttúrustofu Austurlands smellið hér. 4. Bréfleiðis á Náttúrustofu Austurlands, Tjarnarbraut 39b, 700 Egilsstaðir
Þann 28. september sl. fór fram tímamótafundur í Borgarnesi þegar Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur sameinuðu ársfund NÍ og náttúrustofuþing. Fundinn ávörpuðu Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Eydís Líndal Finnbogadóttir forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands og Líneik Anna Sævardóttir stjórnarformaður Náttúrstofu Austurlands. Í erindi Líneikar kom m.a. fram að þó samstarf stofnanna sé markað í lögum er ekkert sem nær utan um það mikilvæga tengslanet starfsmanna sem er grundvöllur samstarfs. Á náttúrustofunum 8 um land allt starfa alls um 50 manns, mest megnis náttúrufræðingar, sem er svipaður fjöldi og starfar á Náttúrufræðistofnun Íslands. Ljóst er að náttúrustofur hafa mikilvægt samfélagshlutverk í dreifðum byggðum sem felst m.a. í að auka þekkingu á náttúru, styrkja innviði og hækka menntunarstig. Í kjölfar ávarpa voru flutt áhugaverð erindi starfsmanna NÍ og náttúrustofa. Fulltrúi Náttúrustofu Austurlands var Rán Þórarinsdóttir sem fjallaði um rannsóknir sínar á burðarsvæðum hreindýra á Snæfellsöræfum sem ná aftur til ársins 2005. Hægt er að lesa um niðurstöður rannsóknanna hér.
Leðurblaka barst til Náttúrustofu Austurlands í vikunni, fannst hún um borð í skipi á veiðum í Rósagarðinum nokkuð djúpt SA af Íslandi fyrir um það bil viku síðan. Skipverjar náðu að fanga hana lifandi en var hún í andaslitrunum þegar komið var að landi. Um er að ræða leðurblöku af tegundinni trítilblaka(Pipistrellus nathusii). Sú tegund hefur fundist hér á landi nokkru sinnum, en aðalheimkynni hennar eru austanverð Evrópa. Er þetta í fjórða skipti frá árinu 2014 sem Náttúrustofa Austurlands fær tilkynningu um leðurblöku.
Á Náttúrugripasafninu í Neskaupstað má sjá uppstoppaða trítilblöku einmitt þá sem barst til okkar árið 2014.