Í ferð Náttúrustofunnar í Kringilsárrana í 7. júlí sl. sást þistilfiðrildi (Vanessa cardui) á flugi. Er líklegt að það hafi flækst hingað til lands frá suður- Evrópu. Á heimsíðu Náttúrfræðistofnunar Íslands kemur fram að um miðjan maí hófst mikill straumur þistilfiðrilda frá Suður-Evrópu norður eftir álfunni. Hér á landi sást eitt þistilfiðrildi 18. maí í Garðabæ og eftir það hafa sést fleiri, aðallega á suður og vesturlandi . Þistilfiðrildi hafa oft náð til Íslands tengt samskonar farflugi, sjá nánar: http://www.ni.is/frettir/nr/942
Hengt var staðsetningartæki um háls hreindýrs þann 15. febrúar síðast liðinn í Haugahólum í Skriðdal og var hún því skýrð Hauga. Því miður heltist hún við að fá svæfipíluna í lærið og hélt sig líklega þess vegna á svipuðum slóðum þar til hún braggaðist í lok mars. Þá fór hún yfir í Geitdal og hélt sig þar næstu daga.
Samhliða árlegum hreindýratalningum Náttúrustofu Austurlands í júlí eru heiðagæsir taldar í sárum á Eyjabökkum. Flogið var 7. júlí 2009 og voru öll skilyrði til talninga hin ákjósanlegustu. Flugvél var TF KLÓ og flugmaður Halldór Bergsson, Jón Ingi Sigbjörnsson til aðstoðar. Engar gæsir sáust á flugi.
Í febrúar og mars voru staðsetningartæki hengd um háls fimm kúa í Snæfellshjörð og tveggja í Álftafjarðarhjörð. Í hálskrögunum eru gps-staðsetningartæki sem staðsetja kýrnar á þriggja tíma fresti í rúm tvö ár. Upplýsingarnar eru síðan sendar sem SMS skilaboð. Núna og á næstunni verður sagt frá ferðum þeirra.
Dagana 22.-26. júní hélt Náttúrustofa Austurlands náttúrufræðinámskeið á Eskifirði í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri. Fimm krakkar voru á námskeiðinu og luku því með sóma. Meðal þess sem var gert á námskeiðinu var að skoða og greina blóm, lífríki fjörunnar skoðað, farið í Helgustaðanámuna, lífríki tjarna skoðað o.fl.
Dagur hinna viltu blóma eða blómadagurinn eins og hann er oft kallaður var sunnudaginn 14.júní síðastliðinn farið var í skipulagðar skoðanaferðir á þrem stöðum á austurlandi.